BMW XM G09 Label Red 2023 kynning
Performance350–550 kW (475–748 hp)
Vélar og eldsneytisgerðPlug-in Hybrid

XM

BMW XM G09 Label Red 2023 kynning

NÝR BMW XM

Performance350–550 kW (475–748 hp)
Vélar og eldsneytisgerðPlug-in Hybrid
XMNÝR BMW XM

BMW XM, BMW XM 50e OG BMW XM LABEL RED.

BMW XM[1]:
Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri í l/100 km, samkvæmt WLTP-prófun: -
Losun koltvísýrings í blönduðum akstri í g/km, samkvæmt WLTP-prófun: 45-35
Orkunotkun í blönduðum akstri í kWh/100 km, samkvæmt WLTP-prófun: 33,6–32,5


BMW XM 50e[1], [2]:
Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri í l/100 km, samkvæmt WLTP-prófun: -
Losun koltvísýrings í blönduðum akstri í g/km, samkvæmt WLTP-prófun: 35-31
Orkunotkun í blönduðum akstri í kWh/100 km, samkvæmt WLTP-prófun: 34,0–32,5

BMW XM Label Red[1], [2]:
Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri í l/100 km, samkvæmt WLTP-prófun: -
Losun koltvísýrings í blönduðum akstri í g/km, samkvæmt WLTP-prófun: 45-35
Orkunotkun í blönduðum akstri í kWh/100 km, samkvæmt WLTP-prófun: 33,5–32,5

Lesa meira

KYNNTU ÞÉR BMW XM

Drifrás, fjöðrun og afköst.

BMW XM.

Fullkomin samblanda afkastagetu BMW M og nýjustu tengiltvinntækninnar.
  • BMW M tengiltvinn, fyrsta rafknúna afkastamikla M-drifið
  • Kraftmikil M TwinPower Turbo V8-strokka bensínvél
  • Sjálfvirk M Professional-fjöðrun skilar öflugum aksturseiginleikum
  • M xDrive með M Sport-mismunadrifi
  • 480 kW (653 hö), tog 800 Nm, hröðun 0–100 km/klst. á 4,3 sek.
BMW XM, framhluti

BMW XM Label Red.

Hámarks afköst og fágun
  • BMW M tengiltvinn, fyrsta rafknúna M High-Performance drifið
  • Kraftmikil M TwinPower Turbo V8-strokka bensínvél
  • Sjálfvirk M Professional-fjöðrun skilar öflugum aksturseiginleikum
  • M xDrive með M Sport-mismunadrifi
  • 550 kW (748 hp), 1000 Nm tog, 0–100 km/klst á 3.8 s[2]
BMW XM Label Red 3/4 framhluti

BMW XM 50e.

Tjáningarmikill stíll og kraftmikil afköst.
  • BMW M tengiltvinn
  • M TwinPower Turbo 6-strokka bensínvél
  • Sjálfvirk M Professional-fjöðrun skilar öflugum aksturseiginleikum
  • M xDrive með M Sport-mismunadrifi
  • 350 kW (475 hp), tog 700 Nm, hröðun úr 0–100 km/klst á 5.1 s[2]
BMW XM 50e 3/4 framhluti
  • BMW XM.
  • BMW XM Label Red.
  • BMW XM 50e.

NÝR BMW XM

HÖNNUN YTRA BYRÐIS BMW XM.

BMW XM, helstu atriði í hönnun ytra byrðis
BMW XM, ytra byrði að framan

Hönnun framhluta.

Auðþekkjanlegur framhlutinn sækir innblástur í lúxusbílaflokk BMW með upplýstu tvískiptu grilli og einkennandi mjóum dagljósum M-bíla. Afgerandi grillið með BMW XM-lógóinu og sérstökum Night Gold áherslulitum vekur athygli hvar sem er. Vérlarhífin, sem er hönnuð í krafmiklum stíl, rennur saman í tvær hvelfingar.

BMW XM, ytra byrði frá hlið

Frá hlið.

Hliðarsvipurinn sameinar eftirtektarverða hönnun í anda tveggja dyra fólksbíla kraftmiklum hlutföllum og stílhreinum áherslum á borð við dekkstu rúður sem framleiddar hafa verið í BMW bíla. Bæði 23” léttu álfelgurnar og Night Gold áherslulitirnir einkenna BMW XM.

BMW XM, ytra byrði að aftan

Hönnun afturhluta.

Tvö lóðrétt, sexhyrnd M-púströr undirstrika afturhluta með gylltum dreifurum og XM-lógói. Geislagröfnu BMW-lógóin tvö, sitthvoru megin í afturrúðunni, vísa í síðustu gerð „M only“, BMW M1. Að lokum kalla umlykjandi afturljósin og brettakantarnir fram styrka og breiða stöðu bílsins.

Hönnun innra byrðis BMW XM.

Vegna reglulegra hugbúnaðaruppfærslna getur útlit skjás sem sýndur er verið frábrugðin raunverulegri skjáhönnun í bílnum þínum.

BMW XM, helstu atriði í hönnun innanrýmis
BMW XM, upplýst loftklæðning í innanrými

Upplýst loftklæðning.

Óbein lýsing loftklæðningar myndar þrívítt strendingslag. Skemmtileg stemningslýsing býður upp á fjölbreytta lýsingu, svo sem móttökulýsingu. Hægt er að stilla litaval í takt við akstursstillingu og stemningu.

BMW XM, aftursæti í innanrými M Lounge

M Lounge.

M Lounge býður upp á einstaka tilfinningu. Samfelld sæti og smáatriði á borð við tígullaga mynstur í höfuðpúðum og saumum gefa fyrirheit um þægindi og lúxus. Þetta og vel mótuð loftklæðning með óbeinni lýsingu, skyggðum rúðum og þægilegum púðum skapar einstaka tilfinningu.

BMW XM innanrými BMW Individual Merino leður með WalknappaVintage Coffee áferð.

Sérvalið leður með gamaldags útliti.

Leðrið er með gamaldags áferð og skreytir hurðarklæðningar og mælaborð með náttúrulegri áferð sinni. Þetta efni er nú í fyrsta skipti notað í nýja BMW XM-bílnum og sérstakar vinnslu- og verkunaraðferðir skapa einstakan stíl í hverjum bíl.

Aksturseiginleikar BMW XM

BMW XM, helstu aksturseiginleikar
BMW XM V8 Plug-In-Hybrid, í akstri

V8-strokka tengiltvinnvél.

V8-strokka tengitvinnvélin veitir hreina akstursánægju, yfirburða kraft og einkennandi M-hljóð. Vélin skilar 480 kW (653 hö) og togi upp á 800 Nm, allt þökk sé samspili hinnar afkastamiklu 4,4 lítra V8-vélar og 145 kW (197 hö) rafdrifinu – samsetning sem knýr BMW XM áfram óheft.

BMW XM V8 Plug-In-Hybrid, frá hlið fyrir framan byggingu

Sjálfvirk M Professional-fjöðrun.

Sjálfvirk M Professional-fjöðrun skilar sportlegri stýringu án þess að það komi niður á þægindum. Sjálfvirkt stýri tryggir stöðugleika á meiri hraða um leið og það minnkar beygjuradíus. Virkar jafnvægisstangir draga úr hliðarhreyfingum yfirbyggingarinnar og bætir þannig aksturseiginleika og þægindi.

BMW XM, að aftan í innanbæjarakstri

M Sport-mismunadrif.

M Sport-mismunadrifið skilar bestu mögulegu afköstum bílsins á vegum úti. Það dreifir drifkraftinum á milli afturhjólanna eftir akstursskilyrðum og eykur þannig grip og stöðugleika í akstri við ýmsar aðstæður, hvort sem er þegar hraði er aukinn út úr beygjum, þegar beygja er tekin á miklum hraða eða við mismunandi aðstæður á vegum.

NÝR BMW XM LABEL RED.

HELSTU EIGINLEIKAR BMW XM LABEL RED.

BMW XM Label Red ytra byrði
BMW XM Label Red vélarhlíf með M-merki

Framúrskarandi vélarhönnun.

V8-strokka tengitvinnvélin með yfirburða afli upp á 550 kW (748 hö) og 1000 Nm togi færir enn og aftur aukna krafta á veginn. Hin afkastamikla 4,4 lítra V8 vél ásamt 145 kW (197 hestöfl) rafdrifi skilar kraftmiklum akstri og áberandi vélarhljóði sem er einkennandi fyrir M.

BMW XM Label Red rauðir áherslulitir

Útlit með djörfum karakter.

Á ytra byrði má sjá einstakar felgur og rauðar áherslulínur sem gefa til kynna frammistöðudrifinn lífstíl. Sérvalið Merino leðuráklæði í svörtu og rauðu, með rauðum áherslum og púðum.

BMW XM Label Red í BMW litum

Einstakar lakkáferðir.

Kraftmikill Karakter - útlit BMW XM Label Red er einstakt. Fjölbreytt úrval af BMW litum og áferðum gerir þér kleift að velja nákvæmlega þann valkost sem endurspeglar persónuleika þinn.

BMW XM LABEL RED Í FROZEN CARBON BLACK LIT.

BMW XM Label Red farþegarými
  • Takmarkað magn: aðeins 500 bílar eru fáanlegir í Frozen Carbon Black lit
  • Til viðbótar við aðra eiginleika BMW XM Label Red, setja grillið og dreifikerfin mjög andstæðar áherslur í Toronto Red lit
  • Glæsilegar rauðar áherslur: „1 af 500“ áletrunum í miðborðinu fyrir neðan stjórnskjáinn

NÝR BMW XM 50e.

HELSTU EIGINLEIKAR BMW XM 50e.

BMW XM 50e ytra byrði
BMW XM 50e að framan

Kraftmikil vélarhönnun

Með 350 kW (475 hö) afli og 700 Nm togi sýnir tengitvinndrif BMW XM 50e kraftinn sem hann inniheldur frá fyrsta metra. Nákvæmt samspil 145 kW (197 hö) rafdrifsins og öflugu 6 strokka bensínvélarinnar skilar kraftmiklum og hvatvísum aflgjafa.

BMW XM 50e

Einstakir aksturseiginleikar.

Sérstakar stífur í framhlið nýja BMW XM 50e hámarka stífleika bílsins. Útkoman er aukin stýrisnákvæmni og stefna, jafnvel við krefjandi akstursskilyrði.

Tvískipt grill með svörtum áherslum á BWM XM 50e

Stílhreinn glæsileiki.

Glæsilegar áherslur og áherslulínur í svörtu háglansi sem að skera sig úr frá Sao Paulo Yellow litnum. M-merkið með silfurlituðum kanti og 23” M álfelgum fullkomnar svipmikið útlit nýja BMW XM 50e.

BMW INDIVIDUAL.

BMW XM í BMW Individual Urban Green á hlið
BMW XM í BMW Individual Anglesey Green metallic á hlið
BMW XM í BMW Individual Sepia Violett metallic áferð að framan
BMW XM í BMW Individual Petrol Mica metallic áferð að aftan

SÉRVALDIR LITIR OG ÁFERÐIR FYRIR XM GERÐIR.

Gerðu hann persónulegri. BMW XM sýnir einn meiri karakter og stíl með einstakri litaáferð. Veldu á milli mismunandi hágæða BMW Individual lita og áferða til þess að aðlaga þinn BMW XM að þínum þörfum. Vinsamlegast hafðu samband við viðurkenndan BMW söluaðila til að fá frekari upplýsingar um sérstaka liti.

 

TENGILTVINNUÐ AKSTURSUPPLIFUN Í NÝJUM BMW XM.

Framsækin tækni til að styðja við akstur á rafmagni og hleðslu.

BMW XM PHEV rafmagnaður akstur
BMW XM Plug-in hybrid M hybrid

M Hybrid.

Ýttu á hnapp til að skipta á milli rafdrifsins og hybrid-stillingarinnar þar sem rafmótorinn og öflug V8-vélin vinna saman. Einnig eru fjölmargar akstursstillingar sem hámarka akstursupplifunina þína.

Frekari upplýsingar
BMW XM tengiltvinndrægni

Akstur á rafmagni.

BMW eDrive-kerfið knýr BMW XM bílana eingöngu með rafmagni, til dæmis í þéttbýli. Þetta þýðir að þú ekur nánast hljóðlaust og án útblásturs.

Frekari upplýsingar
BMW XM tengiltvinnbíll og BMW Charging

BMW Charging.

Hvort sem þú ert heima eða á ferðinni: BMW Charging býður upp á sérsniðnar hleðslulausnir fyrir hvaða aðstæður sem er. Gerir þér kleift að hlaða bílinn um alla Evrópu í einu stærsta hleðslustöðvaneti álfunnar, sem fer sífellt stækkandi. Skoðaðu hleðslustöðu BMW-bílsins þíns og skipuleggðu ferðir þínar á þægilegan hátt í My BMW-forritinu.
Frekari upplýsingar

ÖKUMANNSRÝMI OG TÆKNI.

Vegna reglulegra hugbúnaðaruppfærslna getur útlit skjás sem sýndur er verið frábrugðin raunverulegri skjáhönnun í bílnum þínum.
BMW XM ökumannsrými og tækni
BMW XM M-skjár með BMW-stýrikerfi 8

M-skjár með BMW-stýrikerfi 8.

BMW-stýrikerfi 8 einfaldar stjórnun bílsins, t.d. með raddstýringu og snertiskjá. Hápunkturinn er sértæk M-hönnunin: Efni í tvívídd tryggir skýra birtingu; M-merkið er að finna í kynningu á innihaldinu. M-stillingarnar tvær, ROAD og SPORT, skila einstakri akstursupplifun.

BMW XM sveigður BMW-skjár

Sveigður BMW-skjár.

Samfelldur sveigður BMW-skjárinn birtir upplýsingar um bílinn á skýran hátt og á stóru svæði. Hann sameinar 12,3" mælaskjá og 14,9" stjórnskjá með snertistjórnun. Skjárinn er þægilegur og einfaldur í notkun. Stílhrein samþætting sveigða skjásins við mælaborðið gerir hann að augnayndi.

BMW XM M-uppsetning

M-uppsetning.

M-uppsetning gerir þér kleift að stilla akstursupplifunina eftir þínu höfði. Stilltu breytur fyrir aksturseiginleika eftir þínum þörfum. Hægt er að stilla drif, undirvagn, stýri, hemla, orkuendurheimt og aldrifskerfi M xDrive. Einfalt er að sækja vistaða stillingu með því að nota M1- og M2-hnappana á stýrinu.

BMW XM eigið eSIM-kort

Eigið eSIM-kort.

Eigið eSIM-kort gerir þér kleift að nota þína eigin farsímaáskrift í BMW-bílnum, hvort sem er fyrir símtöl eða gagnanotkun. Snjallsíminn þinn þarf ekki að vera í bílnum. Þú nýtur betri tengingar þar sem þú notar loftnet á ytra byrði bílsins. Fleiri tengimöguleikar: BMW þinn er með innbyggðum 5G-tengimöguleikum og býður upp Wi-Fi hotspot.[3]

Aðgangskerfi.

Aðgangskerfi.

Sparaðu þér ómakið við að halda á bíllyklinum: Aðgangskerfið tekur hurðir M-bílsins sjálfkrafa úr lás. Bíllinn ber kennsl á þig með lyklinum og endalaus leit í vösum er úr sögunni. Í stað hefðbundins lykils getur þú einnig notað samhæfan snjallsíma sem Digital Key Plus eða lykilkort.

BMW XM hleðslubakki fyrir þráðlausa hleðslu

Hleðslubakki fyrir þráðlausa hleðslu.

Meira skipulag, aukin þægindi: Hleðslubakkinn gerir þér kleift að hlaða snjallsímann þinn þráðlaust á þægilegan hátt. Í geymsluhólfinu er einnig pláss fyrir stærri tæki, þar sem auðvelt er að ná í þau, án óþarfa loka eða flæktra snúra. Þá má heldur ekki gleyma örygginu: Innbyggð kælingin ver tækið þitt gegn ofhitnun.

AKSTURSAÐSTOÐARKERFI OG STAFRÆN TÆKNI.

BMW-AUKAHLUTIR.

Með BMW-aukahlutunum getur þú lagað BMW-bílinn að smekk þínum. Vörurnar henta fullkomlega fyrir BMW XM hvað varðar gæði, hönnun og afköst.

BMW XM BMW Advanced Car Eye 3.0 Pro

BMW Advanced Car Eye 3.0 Pro.

BMW Advanced Car Eye 3.0 Pro samanstendur af QHD- og HD-myndavélum sem vakta allt sem gerist fyrir framan og aftan bílinn þegar hann er kyrrstæður. Ef kerfið skynjar titring og óvenjulega hreyfingu við bílinn geymir vistar það atburðinn sjálfkrafa til að skjalfesta möguleg slys eða innbrot.

BMW XM Pro 2.0-hjólagrind á afturhluta

Pro 2.0 reiðhjólafesting aftan á BMW.

Pro 2.0 reiðhjólafesting aftan á BMW er létt en sterkbyggð og getur borið allt að 60 kg. Hún er einstaklega einföld í meðförum og getur borið tvö reiðhjól eða rafmagnsreiðhjól (möguleiki á lengingu fyrir þriðja hjólið). Hægt er að halla festingunni til að auðvelda aðgang að farangursrými.

BMW XM BMW Pro-spjaldtölvufesting

BMW Pro-spjaldtölvufesting.

Örugg festing fyrir spjaldtölvur með BMW-öryggishulstri (hlífðarhulstur). Festinguna er hægt að stilla í mismunandi stöðu og sjónarhorn og hún er fest á ferða- og hægindaaukabúnaðinn eða hefðbundna festingu.

TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR UM BMW XM

BMW XM LABEL RED.

Afl í kW (hö.):[2]:

550 (748) [10]

Hröðun 0–100 km/klst. í sek.[2]:

3,8

Eldsneytisnotkun, í blönduðum akstri í l/100 km samkvæmt WLTP-prófun[2]:

-

Losun koltvísýrings, í blönduðum akstri í g/km samkvæmt WLTP-prófun[2]:

45-35

BMW XM Label Red frá hlið

VERÐ, FJÁRMÖGNUN OG LEIGA.

BMW-FJÁRMÖGNUN.

BMW XM BMW-fjármögnun

Fjármögnun eða kaupleiga – við getum aðlagað allt að þínum þörfum og óskum.

ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF.

FYRIRBYGGJANDI VIÐHALD FYRIR BMW XM.

BMW XM fyrirbyggjandi viðhald

Fyrirbyggjandi viðhald greinir sjálfkrafa væntanlegt viðhald eða viðgerðir sem þörf er á fyrir bílinn og sendir þér skilaboð.
 

  • Tafarlaus hjálp frá BMW-sérfræðingum
  • Vandamál leyst með fjarstýrðu viðhaldi
  • Komið í veg fyrir mögulegar vélarbilanir
  • Aukið framboð á þjónustu fyrir einstaklinga
  • Gjaldfrjálst sem hluti af ConnectedDrive-samningi
Starfsmaður BMW veitir viðskiptavini ráðleggingar

MÁ BJÓÐA ÞÉR PERSÓNULEGA RÁÐGJÖF?

Ef þú hefur einhverjar spurningar, þarfnast frekari upplýsinga eða vilt fá sértilboð fyrir BMW XM, vinsamlegast hafðu samband við BMW söluaðila. Þjónustustarfsfólk BMW veitir þér ráðleggingar með ánægju í síma eða á staðnum.

Eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings.

BMW XM[1]:
Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri í l/100 km, samkvæmt WLTP-prófun: -
Losun koltvísýrings í blönduðum akstri í g/km, samkvæmt WLTP-prófun: 45-35
Orkunotkun, í blönduðum akstri í kWh/100 km samkvæmt WLTP-prófun: 33,6–32,5


BMW XM 50e[1], [2]:
Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri í l/100 km, samkvæmt WLTP-prófun: -
Losun koltvísýrings í blönduðum akstri í g/km, samkvæmt WLTP-prófun: 35-31
Orkunotkun, í blönduðum akstri í kWh/100 km samkvæmt WLTP-prófun: 34,0–32,5
 

BMW XM Label Red[1], [2]:
Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri í l/100 km, samkvæmt WLTP-prófun: -
Losun koltvísýrings í blönduðum akstri í g/km, samkvæmt WLTP-prófun: 45-35
Orkunotkun, í blönduðum akstri í kWh/100 km. samkvæmt WLTP-prófun: 33,5–32,5
 

Opinberar tölur fyrir eldsneytisnotkun, losun koltvísýrings, raforkunotkun og rafdrægi voru fengnar með viðurkenndri mælingaraðferð og eru í samræmi við reglugerð (ESB) 715/2007 eins og breyttar WLTP-Angaben berücksichtigen bei Spannbreiten jegliche Sonderausstattung (in diesem Fall des deutschen Marktes). Fyrir nýja bíla sem hafa hlotið gerðarviðurkenningar eftir 1. janúar 2021 eru aðeins til opinberar tæknilýsingar samkvæmt WLTP-prófunum. Auk þess er NEDC-gilda ekki getið í samvæmisvottorðum frá og með 1. janúar 2023 samkvæmt Evrópureglugerð nr. 2022/195.

Frekari upplýsingar um mælingar í NEDC-prófunum og WLTP-prófunum er að finna á www.bmw.com/wltp


Frekari upplýsingar um eldsneytisnotkun og opinberar tölur um koltvísýringslosun hverrar gerðar fólksbíla má finna í ritinu „Leiðbeiningar um eldsneytisnotkun, losun koltvísýrings og raforkunotkun nýrra fólksbíla“ sem fæst endurgjaldslaust á öllum sölustöðum, á Deutsche Automobil Treuhand GmbH (DAT), Hellmuth-Hirth-Str. 1, 73760 Ostfildern-Scharnhausen, Þýskalandi, og á https://www.dat.de/co2/.

Lesa meira